top of page

Vefsíður

Flísar

Flísar birtust á Skólavefnum 2. október árið 2015. Þær eru kennsluefni ætlaðar framhaldsskólum eða efri bekkjum grunnskóla. Flísar þessar geyma örsögur sem bregða upp myndum af atburðum og aðstæðum ungs fólks í samtímanum. Sögurnar eru hugsaðar sem kveikjur og til þess gerðar að vekja upp ýmsar siðferðilegar spurningar ásamt því að hvetja til skapandi skrifa. Öllum sögunum fylgja verkefni og vangaveltur. Flísar kunna að henta vel í lífsleikni, íslensku, félagsfræði og kynjafræði.

 

Flísar eru öllum aðgengilegar á Skólavefnum og einnig má nálgast þær á Framhaldsskoli.is í gegnum áskrift.

Umsagnir

Petrína Rós Karlsdóttir í Menntaskólanum við Sund:

​

„Ég hef notað þessar örsögur í áfanganum Lýðræðisvitund og siðferði og finnst þær henta mjög vel í kennslunni. Þær taka vel á viðfangsefnum áfangans um siðferðileg álitamál, á borð við einelti, klám, kynlíf, misnotkun áfengis, jafnrétti kynjanna og samkynhneigð. Sögurnar eru einfaldar, bæði að málfari og uppbyggingu, og í þeim er reynt að setja sig í spor ungs fólks sem er að feta sig í frumskógi lífsins.

Mér finnast sögurnar höfða til aldurshópsins 16 - 18 ára. TIl þess að ná enn frekar til hópsins hef ég notað ítarefnið, sem er aftan við sögurnar og þá sérstaklega vídeóin, sem kveikjur að hópvinnu. Það er ágætt að stuða svolítið hópinn með því en um leið að koma krökkunum í gírinn. Síðan lesa þeir sögurnar, ræða þær saman í hópum og kynna svo niðurstöðurnar fyrir bekknum. Efnið er misjafnlega nálægt nemendum en flestum finnst það þó mjög nálægt veruleikanum og að svona geti einmitt gerst. Ég viðurkenni að ég vel svolítið efnið eftir hópum og best finnst mér að vera með blandaða hópa.

   Mér fannst vanta svolítið efni á íslensku um íslenskar aðstæður og þetta efni uppfyllir það.

   Semsagt: Klípusögur er tilbúið námsefni á íslensku sem gerast í íslensku samfélagi og fjalla um siðferðileg álitamál sem höfða til ungs fólks.“

​

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir í Borgarholtsskóla:

​

„Við notum sögurnar þínar [Flísar] í lífsleikni - með góðum árangri. Núna gerðum við hópverkefni - þar sem hver hópur fékk eina sögu - greindi hana, endursagði og tíundaði boðskapinn. Hörkufínar umræður og nemendur tengdu algjörlega við efnið.“

Umsögn fyrrverandi lífsleiknikennara í Menntaskólanum við Sund:

​

„Ég prófaði að vinna með eina sögu í fyrra og gekk það vel. Nemendur áttu auðvelt með að setja sig inn í aðstæður og lifandi umræður mynduðust út frá sögunni.

   Ég hef sjálf lesið sögurnar og tel þær mjög góðar til að fjalla um siðferðileg álitamál, en það er einmitt mikil þörf á slíku efni fyrir þennan aldurshóp."

bottom of page