top of page

Orðastaður

Það sem ég vildi sagt hafa

sjálfsmynd.jpg

 Um mig

Frá mér

Ég heiti Jóna Guðbjörg Torfadóttir og segi gjarna, líkt og Þórbergur Þórðarson forðum, að hver taug í líkama mínum sé heltekin af íslenskum fræðum. 

Ég er íslenskukennari en þegar tóm hefur gefist til hef ég fengist nokkuð við ritstörf og sent frá mér sitt lítið af hverju.

Þessi vefur er til þess gerður að skemmta mér á síðkvöldum en vonandi einhverjum öðrum sem kunna að villast hingað inn. Nú ef skemmtunin ferst fyrir, þá er leiðin héðan mjög greið í allar mögulegar áttir.

bottom of page